5.flokkur kvenna

Áfram Valur

13.05.2010 20:27:01 / Dóra

Uppskeruhátíð mánudaginn 17. maí

Uppskeruhátíð yngri flokkanna í handbolta verður haldin í hátíðarsal Vodafone hallarinnar mánudaginn 17. maí kl.16:30. Þar verður uppskera vetrarins tíunduð og viðurkenningar veittar fyrir tímabilið 2009-2010..

Að lokinni afhendingu viðurkenninga býður knattspyrnudeild Vals upp á safa og kaffi fyrir alla gesti. Iðkendur eru beðnir um að koma með köku/brauðmeti á hlaðborð.

Við hvetjum alla iðkendur til að mæta í æfingagalla Vals eða öðrum rauðum fatnaði. Við hvetjum einnig foreldra til að mæta og fagna uppskerunni með börnum sínum.

 

Með Valskveðju

Uppskeruhátíðarnefnd


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2010 16:50:12 / Dóra

MUNA

KOMA MEÐ 500 KRÓNUR Á ÆFINGU STELPUR!!!!:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2010 12:41:09 / Dóra

Mót í Mosfellsbæ - BREYTING

5 flokkur kvenna

 

 

Við erum að keppa á móti um helgina sem fer fram í Mosfellsbæ.

Við keppum bara á LAUGARDAG!

Gott er að vera með nesti milli leikja.

Það er mæting kl. 12.50!!!!

ÞAÐ ER SKILDUMÆTING!

 

Laugardagur :

13.50        Valur - Fylkir 
15.10        Haukar 2 - Valur
16.30        Fram 2 - Valur
17.50        Fram GH - Valur  

 

Kveðja

Dóróthe

s. 696 7681


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2010 19:40:57 / Dóra

Sæl veri þið

Það hefur verið tekin ákvörðun um að ekki verði farið á Partille Cup í sumar.
Það er ekki næg þáttaka og hreinlega ekki hægt að ætlast til að foreldrar geti lagt út fyrir slíkri ferð. Samt sem áður hefur verið ákveðið að fara í æfingabúiðir í lok tímabils og enda veturinn á skemmtilegan máta. Meira um það síðar.
Snemma á næsta tímabili þarf þjálfari ásamt foreldrum að taka ákvörðun um hvort að 4 flokkur kvenna stefni að utanlandsferð og skipuleggja hana í samvinnu við félagið.

 

Kveðja
Dóróthe  Guðjónsdóttir


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2010 15:56:14 / Dóra

Páskafrí

Eftir daginn á morgun eru stelpurnar komnar í páskafrí.

Frí á æfingu fimmtudag, föstudag og mánudag (1 , 2 og 5 apríl).

Næsta æfing er þriðjudaginn 6 apríl.

Gestaþjálfara verður þá vikuna en ég verð stödd í Þýskalandi.


kveðja
Dóróthe
s 696 7681

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2010 09:37:15 / Dóra

Kæru foreldrar

Í framhaldi af fundinum síðasta þriðjudag þar sem mættir voru foreldrar 5 stúlkna úr flokknum og fram kom áhugi á þáttöku á Partille Cup vil ég koma á framfæri eftirfarandi upplýsingum.
Beint flug til Gautaborgar 4. og 5.júlí og heim 11. og 12. júlí.

Verð á manninn er 93.500 krónur plús kosnaður við þjálfara og fararstjóra sem deilist jafnt niður á þáttakendur en eins og kom fram á fundinum þá kemst ég ekki með  hópinn.

Það sem þetta snýst um eins og staðan er í dag er hvort það er raunverulegur vilji hjá hópnum til að taka þátt  í mótinu.  Ef svo er þá þurfa foreldrar ásamt aðstoðarmanni  að finna staðgengil minn. Stofna þarf foreldraráð sem  þarf  að skipuleggja fjáröflun vegna hugsanlegrar ferðar.

Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að senda mér svar já eða nei  á netfang mitt. Allt ferlið þarf að ganga fljótt fyrir sig þar sem tíminn er orðinn naumur  og aðeins örfá sæti eru laus. (upplýsingar um ferðina gefur Sigurður Gunnarson hjá Úrval Útsýn)

Staðfestingargjald þarf að vera geitt sem fyrst en það eru 30þ. kr á mann.

Partille Cup í Svíþjóð er stæsta handknattleiksmót sem haldið er í Evrópu í yngri flokkum og þarna senda fjölmargar þjóðir keppnislið til leiks.

Æfingar fyrir svona mót þurf að vera markvissar og hópurinn samhentur til að árangur megi nást. Í sjálfum sér er eðlilegt ferli að undirbúa þátttöku á svona móti með ársfyrirvara og þá er hægt að skipuleggja allan pakkann og fjáraflanir sem til falla með góðum fyrirvara. Mín persónulega skoðun er sú að það væri betra að fara með liðið að ári liðnu, einfaldlega vegna þess að færu þær núna þá myndu þær leika í flestum tilfellum við sér eldri stelpur.

Ég geri því hér að tillögu minni að liðið fari á Partille Cup að einu ári liðnu þar sem tíminn er mjög skammur til undirbúnings svo ekki sé talað um kostnað vegna ferðarinnar.

Nú ef foreldrar eru á öðru máli og vilja að ferðin sé farin þá þarf að kalla saman foreldraráð, bóka ferðina og borga staðfestingagjald eins og kom fram hér að framan. Og í framhaldinu væri ráðlegt að ræða málið við íþróttafulltrúa Vals. />


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.03.2010 10:30:41 / Dóra

....

Takk fyrir foreldrafundinn í gær


En varðandi mótið á Selfoss á föstudaginn þá ætlum við að fara þetta á 2 einkabílum.

Pabbi Sóleyjar og ég verð á bíl, 7 komast með honum og 4 með mér.

Það er mæting niður í Valsheimili kl. 13.00 á föstudaginn

Og stelpur munið eftir búningum og skóm, Lakmali!!

Allir eiga að vera með gott nesti og pening fyrir kvöldmat en við ætlum að fara og fá okkur eitthvað gott að borða eftir síðasta leik áður en lagt er af stað í bæinn.


Hópurinn:

Hafdís

Unnur

Sóley

Grace

Jóhanna

Lakmali

Sóllilja

Þórdís

Marta

Guðrún  

Ásta


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.03.2010 13:47:05 / Dóra

Íslandsmót 19-20 mars Selfossi

Næstu helgi er mót hjá okkur á Selfossi, keppt er á föstudegi og þurfum við ekki að gista.
Það fer rúta frá BSÍ á föstudag kl. 14.00, það kostar 1200 kr á manninn en það tekur ca. 60 mín að keyra á Selfoss. Þá höfum við 30 mín. til þess að koma okkur í leik.
Þetta er stuttur tími en gæti gengið upp ef allir eru tilbúnir í búningum.


Riðill
HK 2
Valur
Fylkir 2
Þróttur
Grótta 2

kl 15.30  Valur - Grótta2
kl 16.40  HK2 - Valur
kl 18.25  Valur - Þróttur
kl 20.20  Fylkir 2 - Valur


Á æfingu á morgun verð ég með útprentun á leikjum og aðrar upplýsingar.

kveðja
Dóróthe
sími 6967681


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.02.2010 09:26:30 / Dóra

Laugardagur - skyldumæting

Á laugardaginn rennur upp stór stund í sögu Vals, þegar karla- og kvennalið félagsins taka bæði þátt í úrslitaleikjum Eimskipsbikarsins. Þetta er þriðja árið í röð sem karlaliðið fer í Höllina, en síðustu tvö ár hefur liðinu tekist að vinna Bikarmeistaratitilinn með sigrum á Fram og Gróttu. Það yrði því einstakt afrek að vinna á laugardaginn og skrá nöfn liðsins á spjöld sögunnar með því að vinna titilinn þriðja árið í röð. Kvennaliðið var síðast í bikarúrslitaleik árið 2000, þegar frækinn sigur vannst á Gróttu eftir tvíframlengdan leik. Það er mikið í húfi á laugardaginn, en ekki má gleyma því að þetta eru skemmtilegustu leikirnir sem leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn, starfsmenn og allir sem að liðunum koma taka þátt í.

 

Undanfarnar vikur hefur undirbúningur fyrir helgina staðið yfir og nú styttist í stóru stundina. Við viljum hvetja alla Valsara sem vettlingi geta valdið til þess að mæta á leikina og styðja liðin, sem eiga stuðninginn sannarlega skilinn. Það verður upphitun á Hlíðarenda frá kl. 11:00 þar sem börnin fá candy-floss, andlitsmálun og drykk, auk þess sem 300 fyrstu sem mæta fá “bikarbol”, þannig að sem stærstur hluti Laugardalshallar verði rauður.

 

Við hvetjum fólk til þess að fjölmenna, taka aðra fjölskyldumeðlimi með, hvort sem þið eruð iðkendur, foreldrar, Hlíðabúar eða bara Valsarar – þá látið ekki ykkar eftir liggja í að skapa ógleymanlegan bikardag!

 

Látum óma í Laugardalshöll á laugardaginn – ÁFRAM VALUR!


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2010 10:53:36 / Dóra

æfing í dag fellur niður

Þar sem íslenska landsliðið er að koma heim frá EM í Austurríki fellur æfingin niður í dag.
Það verður móttökuathöfn í Smáralind - það verður auglýst nánar síðar á visir.is eða mbl.is




» 1 hafa sagt sína skoðun

28.01.2010 18:44:04 / Dóra

NÝTT plan fyrir mótið um helgina!!!

Þar sem eitt lið hætti við þáttöku á mótinu um helgina hafa orðiði breytingar

Laugardagur
kl. 09.40    Valur - KA/ Þór
kl.11.00     KR - Valur
kl. 12.20    Valur - Þróttur
kl. 13.40    Haukar 3 - Valur

ath að það er æfing á morgun kl. 16.40 og ég verð með  þessar upplýsingar þar líka.
Mæting kl. 09.00 á laugardag - Ásvellir - Haukaheimilið.


EF ÞAÐ ER EINHVER SEM KEMST EKKI ÞÁ ÞARF AÐ LÁTA MIG VITA. ÉG VEIT AÐ EGLE, ANNA OG SANDRA KOMAST EKKI. ÞIÐ HINAR LÁTIÐ VITA.



» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2010 12:53:41 / Dóra

Hafnarfjarðarmót Byrs og Hauka 2010 - Breyting á tíma

Þá er komið leikjaplan fyrir næsta mót okkar í vetur sem er helgina 29-31 janúar.
Deid 2a - Selfoss, Haukar 1, HK 1, ÍR3, Fram 2 og Valur.

Keppt er bæði föstudag og laugardag.
Föstudagur kl. 16.20       HK1 - Valur
Föstudagur kl. 19.40       Valur - ÍR3
Laugardagur kl. 15.00     Haukar1 - Valur
Laugardagur kl. 17.00     Valur - Fram GH1
Laugardagur kl. 18.20     Selfoss - Valur

Meira um það seinna.

kveðja
Dóróthe

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.01.2010 08:05:09 / silla

ráðstöfun frístundastyrks‏

Búið er að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið er fyrir ráðstöfun frístundastyrksins út janúar mánuð en eftir það verða sendir út gíróseðlar. Ef barnið er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu félagsins í síma 414-8000 eða sendið tölvupóst á ragnhildur@valur.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.11.2009 13:27:36 / Dóra

ég vil minna á

að á morgun þurfa allir að vera búnir að greiða fyrir ferðina til Vestmannaeyja!!

kveðja, Dóróthe
6967681


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.11.2009 10:24:12 / Dóra

Valur - Stjarnan kl. 19.30. - miðvikudag

Það verður sannkallaður toppslagur í N1 deild kvenna miðvikudagskvöldið kl. 19:30, en þá mæta Íslands- og bikarmeistarar Stjörnunnar í Vodafonehöllina. Valur og Stjarnan eru jöfn á toppi deildarinnar með 12 stig, en Stjarnan hefur leikið einum leik fleiri en Valur. Liðin mættust í fyrstu umferðinni í haust og þá höfðu okkar stúlkur góðan eins marks sigur í Mýrinni, 18-17.

Við hvetjum alla handboltaáhugamenn til að fjölmenna á leik Vals og Stjörnunnar á miðvikudaginn. Hann hefst kl. 19:30 í Vodafonehöllinni og geta ársmiðahafar gengið að súpunni góðu sem vísri og áhorfendur verða vafalaust ekki sviknir af sjálfum handboltaleiknum.

Sjáumst í Vodafonehöllinni á morgun, miðvikudag. Áfram Valur!

Allir mæta í rauðu
kv. Dóróthe

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.